Cosmo Group

03 March, 2006

HeXía

Við fengum ekki íbúðina útí Bronshöj, sem er mjög gott. Við sögðum já við henni, en vorum númer 16 á listanum af þeim sem boðin var íbúðin, svo einhver ofar en við hefur líka sagt já takk, ef ekki allir. En með því að segja já takk erum við ennþá á þessum biðlista, því ef við hefðum sagt nei takk hefðum við dottið af honum, en samt staðið eftir á hinum 18 listunum sem við erum skráðar á. Okey, skiljiði? !

Í gær fórum við systur á KAB skrifstofuna, þar sem fúla kellingin vinnur, ef þið munið eftir henni úr færslunni sem hvarf. Ingu Rún fannst hún jafn mikið HEX og mér. Ég gleymdi bréfinu frá KAB og var því ekki með "opnoterings"númerið með mér, sem hún byrjaði á því að biðja um.
"þú VERÐUR að hafa það með ef ég á að geta hjálpað þér" sagði sú fúla
"ó ókei, en ég veit á hvaða listum við erum á" svaraði ég og við gátum líka sagt henni nákvæmlega hvar íbúðin var sem við fengum tilboðið um og á hvaða lista sú íbúð er.
"og svo man ég auðvitað cpr númerið (kennitalan) mitt" bætti ég við.
"hvað viltu vita" spurði sú fúla, en fúlli
"hvort við megum eiga von á fleiri tilboðum fljótlega, og hvernig maður raðast á þennan lista, því við vorum númer 16 síðast í röðinni, og hvort við eigum einhvern sjéns á að komast ofar og við getum flutt strax ef við fáum tilboð, og svoleiðis!" romsaði ég útúr mér.
Hún svaraði einhverri langloku um það hvernig svona listar virka og að það væri nú breytilegt eftir hverjum og einum hvernig maður raðaðist á þá og hvað liði langt á milli þess að einhver flytti út. Sem sagt, almennt svar.
"já ok, svo þú getur EKKERT sagt okkur um okkar möguleika?" spyrjum við í systurnar í kór (og leið eins og Fraiser og Niels)
Sú fúla dæsti.
"hvert er CPR númerið þitt?"
ég sagði henni það og hún fetti mér upp (ekki flókið - þótt ég hafi ekki þetta opnoteringsnúmer)
"já ég sé að þú hafur fengið tilboð, sagt já og verið númer 16 í röðinni og ekki fengið íbúðina"
" aha, akkúrat"
"viljið þið kannski tala við hana Elísubet, sem sendi ykkur tilboðið og hefur með ykkar mál að gera?" ælir sú fúla loks útúr sér.
"uhh, já takk, það væri hjálplegt"

Og við fengum að fara til Elísubetar, sem vissi allt um málið og gat gefið okkur öll þau svör sem okkur vantaði.

----------------------------------------------------------------------------
Samt eru íbúðamál nokkuð að skýrast. Óvænt tilboð (ekki frá KAB) um íbúð í Fredriksberg, við Forum, barst okkur í gær. Skoðuðum við hana í morgun og líst ljómandi vel á.

Svo er bara HELGI og ýmislegt í vændum á henni helginni. Byrjum á tónleikum í Loppen í kvöld með pönkkellingunum sem kalla sig Chicks on Speed. Áhugavert.

02 March, 2006

Afmæliskonur

Steinunn á afmæli í dag, 2.mars 27 ára, og Karen átti afmæli í fyrrdag, 28.febrúar 26 ára.
Cosmó óskar þessum eðalkonum hjartanlega til hamingju með dagana :)

28 February, 2006

Saltkjöt og baunir túkall


Sprengidagur er alltaf þriðjudagurinn í 7. viku fyrir páska. Í heimildum frá miðri 18. öld er dagurinn tengdur kjötáti og var hangiket lengi helsti veislukosturinn hér á landi enda salt ekki á hvers manns borðum í þá daga. Sá siður að borða saltkjöt og baunir á sprengidag var orðinn þekktur hér á síðari hluta 19. aldar og varð fljótt almennur. Mönnum ber ekki saman hvaðan nafn dagsins kemur. Í þjóðsögum Jóns Árnasonar segir frá fólki sem var að borða mikla kjötmáltíð og segir húsmóðirin eftir að búið var að borða: ?Guði sé lof, mett er ég og mínir.? Dóttir húsmóðurinnar hugsaði með sér að mamma hennar hefði örugglega fengið meira að borða en hún og segir?Springi sá sem fyllstur er!? Þá kom í ljós hver hafði borðað mest því stelpan sprakk sjálf. Sagan segir að eftir það hafi dagurinn verið kallaður sprengidagur. Líklegra má þó telja að nafn dagsins eigi sér annan uppruna. Þennan dag, sem og nokkra aðra iðrunardaga, var í kaþólskum sið stökkt vígðu vatni á kirkjugesti. Slíkir dagar voru kallaðir sprengetage á þýsku og sennilegt er, að það heiti hafi borist hingað með erlendum biskupum og kaupmönnum. Við siðskipti lagðist þessi siður af hérlendis en heitið hélt sér og fékk nýja merkingu í tímans rás.

gudrun@bb.is


----------------------------------------------------

í tilefni dagsins eldaði ég misheppnað lasanjah, það varð eins og súpa/æla. Sem betur fer höfðu Bragi og Inga hugsað fyrir eftirrétti, dýrindis kleinuhringjum, til að bæta upp fyrir bolludagsgleymskuna í gær.

Ef ég væri lífhrædd



væri ég flogin til Íslands...


... fuglaflensan komin til Svíþjóðar

...skotárás á Latin Quarter (sem við Bragi urðum vitni að á leiðinni heim aðfaranótt sunnudags - þeir skotglöðu ófundnir)

og

...hér snjóar og snjóar, en við það lamast allt í DK

27 February, 2006

Á helginni

voru Depeche Mode í Parken


og Linda Lundbergsdóttir í borginni. Af því tilefni buðum við Egesystur til veislu með Frú Lindu, Lísu, Andreas, Halli, Braga og Þórhildi drottningu, sem sýndi góða takta...


og Sparisjóður Hafnarfjarðar hélt árshátíð í Köben, rakst maður því á ófáa Hafnfirðingana á leið sinni í Þvottahúsið.